Forsíða arrow Hjartadagurinn
Hjartadagurinn

Hjartadagurinn er haldinn á heimsvísu 29. september ár hvert en það er Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) með stuðningi frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni (WHO og UNESCO) sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Hjartavernd er fyrir hönd Ísland aðli að sambandinu. 

Markmið Hjartadagsins, sem yfir 100 þjóðir taka þátt í um allan heim, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf. Á hverju ári falla í valinn í heiminum rúmlega 17.1 milljónir manna og kvenna af völdum hjarta- og æðasjúkdóma og eru þessir sjúkdómar algengasta dánarorsök alls mannkyns. Þetta þýðir að ein manneskja deyr á hverjum tveimur sekúndum í heiminum vegna hjarta- og æðasjúkdóma og er Ísland þar engin undantekning þar sem um 700 manns deyja árlega vegna sjúkdóma í blóðrásarkerfi sem jafngildir einum manni og einni konu á dag.

Nánar er hægt að lesa um Alþjóðlega hjartadaginn með því að smella hér
 

     Alþjóðlegur hjartadagur -29. september 2011

hd.jpg
Hjartavernd, Hjartaheill, Heilaheill og Neistinn bjóða þér að taka þátt í hjartadeginum. Fræðsluerindi fyrir 10 bekk í Seljaskóla. Menntaskólinn í Kópavogi er með viðamikla dagskra á deginum og heldur sannkallaðan Hjartadag undir yfirskriftinni
Hjartað í hjarta Kópavogs. 

09:00 Fyrirlestur Þórunnar Ernu Clausen leikkonu í Sunnusal skólans
09:30 Er þrýstingurinn í lagi?
10:40 Gjörningur - Hjartað í hjarta Kópavogs við Listasafn Kópavogs 
11:40 Af hjartans lyst - hjartadagsbrauð með súpu í boði matvæladeilda  
 
25. september 2011:

Hið árlega Hjartadagshlaup verður ræst á Kópavogsvelli klukkan 10:00 þar sem hlaupnir verða 5 og 10 km með tímatöku. Ný og endurbætt hlaupaleið um Kópavogsdal verður hlaupin. Þátttaka í hlaupinu er ókeypis og vegleg í boði fyrir efstu sæti, auk útdráttarverðlauna. Skráning er á www.hlaup.is eða á staðnum við nýju stúkuna á Kópavogsvelli frá klukkan 09:00.

 

 

Kort af hlaupaleiðinni: 

 

leidin.jpg

 

 

Hjartagangan verður 3ja km rösk ganga sem allir geta tekið þátt í án þess að skrá sig áður. Stafgangan hefst klukkan 10:15 og verða stafir á staðnum. 

  • Allir sem taka þátt í deginum fá frítt í sundlaugar Kópavogs

  • Vatn og ávextir sem efla hreysti hjartans

Komdu og taktu þátt í skemmtilegum degi

  

Hvernig vinn ég með hjartanu?

  • Hreyfðu þig á hverjum degi.

  • Hreyfðu þig í vinnutímanum eins og þú best getur. Fáðu þér léttan göngutúr um vinnustaðinn eða nánasta umhverfi í hádegismatnum eða kaffitíma og fáðu samstarfsfólk þitt til að gera hið sama.

  • Ekki senda töluvupósta til samstarfsfólks, notaðu tækifærið til að hreyfa þig - stattu upp og farðu gangandi til viðkomandi.

  • Ekki taka lyftuna milli hæða.
  • Leggðu bílnum þínum fjarri inngangi vinnustaðarins.
  • Hjólaðu í vinnuna.
  • Fræddu samstarfsfólk þitt um kosti þess að hreyfa sig reglulega og hve miklu það skilar sér í bættri heilsu.
  • Hjálpaðu öðrum að hefja sín fyrstu skref í heilsueflingu, oft er gott að mynda hópa á vinnustað sem fara saman í gönguferðir.
  • Farðu fram á hollan mat í mötuneyti, kaffistofu eða finndu í nágrenni vinnustaðarins matsölustaði sem leggja áherslu á holla rétti.
  • Ræddu við forsvarsmenn fyrirtækisins sem þú vinnur hjá um hvernig hægt er að auka velferð á vinnustaðnum.
Helstu áhættuþættir hjartasjúkdóma eru meðal annarra hár blóðþrýstingur, hækkað kólesteról (blóðfita) og blóðsykur, reykingar, of lítil neysla ávaxta og grænmetis, ofþyngd og hreyfingarleysi. Á marga þessa áhættuþætti er tiltölulega auðvelt að hafa áhrif á með heilbrigðum lífsstíl.

 

Topp 10 listinn fyrir heilbrigt hjarta

  • Þitt framlag...
  • 1. Reyktu ekki
  • 2. Hreyfðu þig daglega
  • 3. Borðaðu hollan mat
  • 4. Haltu kjörþyngd
  • 5. Forðastu óhóflega streitu
  • Láttu kanna... 
  • 6. blóðþrýsting þinn
  • 7. blóðsykur þinn
  • 8. kólesteról þitt
  • 9. Ekki gleyma að ráðfæra þig við lækni
  • Síðast en ekki síst... 
  • 10. Njóttu lífsins en farðu vel með hjartað, þú átt bara eitt