Forsíða arrow GoRed fyrir konur
GoRed fyrir konur

Af hverju GoRed?

Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið  miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum. Aukin vitund kvenna um áhættuþættina hefur einnig óbein áhrif á lífsstíl karla og ungmenna.

GoRed átakið er alheimsátak, á vegum World Heart Federation. Um er að ræða alþjóðlegt langtímaverkefni sem hófst í Bandaríkjunum og víða í Evrópu árið 2004. Verndari átaksins á Íslandi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra.  Formaður stjórnar GoRed er Vilborg Sigurðardóttir sérfræðingur í hjartasjúkdómum.

  • Jafnmargar konur og karlar látast árlega af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.
  • Konur gera sér ekki grein fyrir eigin áhættu.
  • Einkenni sjúkdómsins eru oftar óljósari hjá konum en körlum þannig að greiningarferli og áhættumat vegna  hjarta- og æðasjúkdóma tefst oft.

Samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar eykst tíðni áhættuþátta hjá konum eftir 50 ára aldur, sem sem hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról, sykursýki og ofþyngd. Með hollu mataræði og reglubundinni hreyfingu má minnka líkurnar á flestum áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma.

GoRed á Íslandi er samstarfsverkefni Hjartaverndar, Heilaheilla og Hjartaheilla, landssamtaka hjartasjúklinga, auk fagdeildar hjartahjúkrunarfræðinga og aðkomu Lýðheilsustöðvar. GoRed stendur nú í þriðja skiptið fyrir átaki til að fræða konur um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma, einkennin og hvernig hægt er að minnka líkurnar á að fá þessa sjúkdóma.

GoRed - fyrir konur á konudaginn
Akureyri,  20. febrúar á Hótel KEA kl. 13:30-16:00
Átak gegn hjarta- og æðasjúkdómum


13.30 -14.00
Heilsumælingar fyrir konur hjúkrunarnemar Háskólans á Akureyri

14:00-14:10
Fiðluleikur konu

14.10- 14.15
Opnun:  Árún K. Sigurðardóttir, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri

14:15-14:40
 Streita kvenna og lausnir gegn streitu
Sólveig Fríða Kjærnested, sálfræðingur

14:40-14:55
Reynslusaga konu
Þóra G. Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur

14:55-15:10
Hreyfihlé
 Kristveig Atladóttir, Sjúkraþjálfi

15:10-15:25
Áhættuþættir hjartasjúkdóma kvenna
Sólveig Pétursdóttir, læknir

15:20-15:40
15.40-15.50
Skemmtun leikur og söngur milli atriða í boði Jönu Maríu Guðmundsdóttur, leikkonu

Skipuleggjendur GoRed á Akureyri
FSA, Háskólinn á Akureyri,  Hjarta og lungnastöðin Bjargi, Hjartavernd Norðurlands,  Hjartavernd,  Hjartaheill, Hjartasjúkdómafélagið


Í tilefni GoRed á Akureyri  bjóða hjúkrunarnemar frá Háskólanum á Akureyri  upp á heilsumælingar á Glerártorgi, föstudaginn 18. febrúar kl 16-18 og laugardaginn 19. febrúar kl 14-16.

 

 

 

 

 

 

Ætlunin er að vera með víðtæka kynningu, skemmtun og fræðslu í Smáralind í Kópavogi frá og með 12. febrúar næstkomandi og nær átakið hámarki þann 17. febrúar en þá verður haldið konukvöld í Smáralind með ýmsum skemmtilegum uppákomum millil 19:00 og 21:00. Þá verður hægt að fá mældan blóðþrýsting og ráðfæra sig við sérfræðing um heilsu og áhættu á hjarta- eða æðasjúdómi auk almennra ráðlegginga um hreyfingu, mataræði og lífsstíl.

Hreyfing heilsulind, Actavis og fleiri verða einnig með kynningar.

Á Akureyri verður einnig vegleg dagskrá á konudaginn þann 20. febrúar.

Til mikils að vinna, því markmið átaksins er að fræða konur og karla um einkenni hjarta- og æðasjúkdóma en sú þekking getur bjargað mannslífi.

Við vonumst til að þú sjáir þér fært að taka þátt í GoRed fyrir konur með okkur með því að mæta á konukvöldi Smáralindar fimmtudaginn 17. febrúar frá klukkan 19:00-21:00 eða á Hótel KEA sunnudaginn 20. febrúar frá klukkan 13:30 - 16:00.

Merki samtakanna, rauði kjóllinn til sölu, sem fyrsta skrefið í stofnun rannsóknarsjóðs GoRed fyrir konur á Íslandi. Nælan er nú þegar til sölu í Lyfju Smáralind, Lágmúla, Smáratorgi, Akureyri, Debenhams, Avon, Levi's og Benetton Smáralind.

Ekki bíða til morguns – hugsaðu um hjartað þitt í dag!

Hvaða konur eru í forgangi?

  • Einkennalausar konur, 40 ára og eldri, ættu að fara í áhættumat til greiningar á áhættuþáttum á 5 ára fresti.
  • Einkennalausar konur yngri en 40 ára sem hafa ættarsögu um hjarta- og æðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum og/eða með sögu um ættgenga blóðfituröskun reglulega

Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum

  •  Aldur
  •  Reykingar. Kona sem reykir er í fjórfalt meiri áhættu en karl sem reykir.
  •  Sykursýki er alvarlegur áhættuþáttur hjá konum.
  •  Blóðfituröskun
  •  Háþrýstingur
  •  Ættarsaga um kransæðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum
  •  Ofþyngd (BMI > 25-30) sérstaklega aukin kviðfita;
  •  Offita (BMI>30)
  •  Hreyfingarleysi

Ofangreindir áhættuþættir eru flestir einkennalausir og því þarf að mæla þá sérstaklega.

 

 Einkenni hjartaáfalls og heilaslags – Konur eru öðruvísi:


  Konur eru líklegri til að upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:

  • Óútskýrðan slappleika eða þreytu
  • Óeðlilegt kvíðakast eða verða taugaóstyrkar
  • Meltingartruflanir eða verk vegna uppþembu

  Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:

  • Þyngsl eða verk fyrir brjósti eða fyrir neðan bringubein
  • Óþægindi eða verk milli herðablaða, í hálsi, kjálka eða maga
  • Verk sem kemur við áreynslu og hverfur við hvíld og getur verið fyrirboði kransæðastíflu
  • Stöðugan verk fyrir brjósti etv. með ógleði og kaldsvita sem getur verið einkenni um bráðakransæðastíflu og krefst tafarlausrar meðferðar


    Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni heilaslags:

  • Dofa eða máttleysi í andliti, handlegg eða fæti, aðallega í öðrum helmingi líkamans
  • Ringlun, erfiðleika með að tala eða að skilja
  • Erfiðleika með að sjá með öðru eða báðum augum
  • Erfiðleika með gang, svima, skort á jafnvægi eða samhæfingu
  • Slæman höfuðverk af óþekktri orsök
  • Yfirlið eða meðvitundarleysi