|
| Öldrunarrannsókn 2. áfangi |
|
Öldrunarrannsókn
Hjartaverndar
Sjúkdómar og fylgikvillar öldrunar er
vaxandi vandamál samfara mikilli fjölgun þeirra einstaklinga sem ná háum aldri. Öldrunarrannsókn Hjartaverndar hefur þegar
gefið vísbendingar um að hugsanlega megi hafa áhrif á hraða hrörnunar eða þróun
sjúkdóma og þar með lífsgæði með margvíslegu inngripi eða ráðleggingum. Rannsókninni
er lýst mjög vel í grein sem birtist í American Journal of Epidemiology árið
2006 (165. tbl; bls. 1076-1085). Með
endurtekinni rannsókn á einstaklingum yfir sjötugt er líklegt að enn frekari
upplýsingar fáist sem leiða munu til aukins skilnings og þekkingar á
öldrun.
Öldrunarstofnun
bandaríska heilbriðgðisráðuneytisins (National Institutes of Health) og
Hjartavernd tóku því aftur saman höndum um að halda Öldrunarrannsókn
Hjartaverndar áfram. Formlega byrjaði 2.
áfanginn þann 1. október 2007 en undirbúningsvinna hafði staðið yfir allt frá
áramótum og í raun allt frá því að fyrsta áfanganum lauk. Annar áfangi Öldrunarrannsóknarinnar er ekki
alveg eins umfangsmikill og 1. áfanginn enda fer rannsóknin fram í tveimur heimsóknum í stað
þriggja. Flestar mælingar á
myndgreiningardeild eru endurteknar eins og segulómun af heila og mælingar með
tölvusneiðmyndum. Minnispróf, heyrnar-
og sjónpróf eru einnig á sínum stað.
Allar mælingar sem gefa upplýsingar um hjarta-og æðasjúkdóma halda
áfram, eins og blóðprufur, blóðþrýstingur og hjartalínurit. Þessar mælingar hafa verið gerðar í
Hjartavernd frá stofnun 1967 og eru ennþá mikilvægar í forvarnastarfsemi
Hjartaverndar fyrir fólk á öllum aldri.
Það er von okkar að flestir sem fá boðsbréf frá okkur sjái sig fært um að koma aftur í Hjartavernd og taka þátt í öðrum áfanga Öldrunarrannsóknarinnar. Þátttaka er mikilvæg til að hægt verði að auka þekkingu okkar á öldrun á Íslandi. Með aukinni þekkingu má færa líkur fyrir því að unnt verði með enn markvissari aðferðum en áður að beita fyrirbyggjandi læknisfræði á þessu sviði til að bæta heilsu og auka lífsgæði eldra fólks. Upplýsingabækling um Öldrunarrannsóknina má sjá með því að smella hér . Þar er framkvæmd rannsóknarinnar nánar lýst. Þessi bæklingur er sendur öllum þeim sem boðaðir eru til þátttöku.
|