Öldrunarrannsókn 1. áfangi
|
| Öldrunarrannsókn |
|
Öldrunarrannsóknin Hjartaverndar er nýjasti
áfanginn í Hóprannsókn Hjartaverndar, sem hófst 1967. Öldrunarrannsóknin er samstarfsverkefni
Hjartaverndar og Bandaríska Heilbrigðisráðuneytisins (National Institutes
of Health).
Markmið Öldrunarrannsóknarinnar Markmið rannsóknarinnar er að kanna heilbrigði öldrunar og reyna að finna út hvaða þættir það eru í umhverfi, erfðum og líkamsástandi fólks sem hafa áhrif á heilsu þess á efri árum. Vonast er til að rannsóknin gefi upplýsingar um samband á milli mælanlegra þátta snemma á ævinni og þróun sjúkdóma á efri árum og þá ekki síst við heilbrigði öldrunar.
Framkvæmd rannsóknarinnar Öldrunarrannsókn Hjartaverndar er viðamesta rannsókn sinnar tegundar sem gerð hefur verið í heiminum. Þau líffærakerfi sem eru skoðuð eru:
•
Heili
•
Bein
•
Vöðva og fitudreifing líkamans
•
Hjarta og æðakerfi Upplýsingabæklingur um Öldrunarrannsóknina er sendur öllum þeim sem eru boðaðir til þátttöku í rannsókninni. Þar er framkvæmd rannsóknarinnar nánar lýst.
Upplýsingarnar sem safnast í rannsókninni verða nýttar í almannaþágu. Reynt verður að sjá hvort hægt er að koma í veg fyrir eða hægja á öldrunareinkennum. Vonast er til að upplýsingarnar nýtist þannig að unnt verði að beita fyrirbyggjandi læknisfræði til að bæta heilsu og auka lífsgæði fólks á efri árum.
Við starfsmenn Hjartaverndar sendum öllum þátttakendum Öldrunarannsóknarinnar okkar bestu þakkir fyrir þátttökuna og ekki síst fyrir hina einstöku velvild og hlýju sem við höfum fundið hjá gestum okkar. Þetta hefur verið tímafrek rannsókn, en alls tóku 5764 einstaklingar þátt í henni og var hver þátttakandi að meðaltali hjá okkur um 9 klukkustundir í alls þremur heimsóknum. Það voru alls 237 einstaklingar sem þáðu heimaheimsókn og 44 sem tóku þátt með því að gefa blóð. Einnig viljum við þakka þeim 1000 aðstandendum sem svöruðu spurningum okkar.
Við hjá
Hjartavernd vonumst til þess að þeir, sem eiga eftir að fá boðsbréf frá okkur,
muni slást í hópinn og taka þátt í 2. áfanga Öldrunarrannsóknar Hjartaverndar,
sem hófst 2007.
|