|
Inngangur
Í lok nóvember 1967 komu fyrstu gestirnir í Hóprannsókn Hjartaverndar til skoðunar í Rannsóknarstöð Hjartaverndar í Lágmúla 9. Þrjátíu árum síðar, í nóvember 1997, komu svo síðustu einstaklingarnir sem valdir voru í þessa hóprannsókn til skoðunar á stöðinni. Þar með lauk gagnasöfnun vegna umfangsmestu hóprannsóknar sem gerð hefur verið hér á landi. Hér verður gerð nokkur grein fyrir þessari rannsókn og öðrum rannsóknum sem gerðar hafa verið á Rannsóknarstöð Hjartaverndar á þessu þrjátíu ára tímabili.
Rannsóknarstöðin reist
Hjartavernd
- landssamtök hjarta- og æðaverndarfélaga á Íslandi - var stofnuð 1964
að frumkvæði Sigurðar Samúelssonar, prófessors. Í lögum samtakanna
segir m.a. "Tilgangur samtakanna er barátta við hjarta- og æðasjúkdóma,
útbreiðslu þeirra og afleiðingar. Í baráttunni við þessa sjúkdóma
hyggjast samtökin m.a. beita þessum ráðum: ... að stuðla að auknum
rannsóknum á þeim hérlendis." Í samræmi við þetta markmið var ákveðið
að koma á fót sérstakri rannsóknarstöð og framkvæma þar umfangsmikla
hóprannsókn til að kanna m.a. útbreiðslu hjarta- og æðasjúkdóma hér á
landi og finna helstu áhættuþætti þeirra svo hægt yrði að beita
árangursríkum forvörnum. Efnt var til almennrar fjársöfnunar sem tókst
það vel að hægt var að kaupa hæð í nýbyggðu húsi að Lágmúla 9, innrétta
hana og búa tækjum. Var rannsóknarstöðin tilbúin til notkunar haustið
1967.
Tækjabúnaður - fyrsti sjálfvirki efnamælir á Íslandi
Lögð
var áhersla á að búa stöðina tækjum af bestu gerð. Fyrsti sjálfvirki
efnamælirinn á Íslandi AutoAnalyzer I (Technicon) var keyptur fyrir
efnarannsóknastofu stöðvarinnar. Hann var búinn tveim
efnagreiningarásum sem hvor um sig annaði um 60 efnagreiningum á
klukkustund. Þessi efnamælir reyndist mjög vel og var í notkun í 18 ár.
Önnur tæki voru m.a. röntgenmyndavél, hjartalínuritstæki, öndunarmælar,
þrekhjól o.fl. Var útbúnaður og skiplag stöðvarinnar miðað við það að
hægt væri að rannsaka um 30 einstaklinga á hverjum degi.
Starfsfólk árið 1997
Á
Rannsóknarstöð Hjartaverndar vinna nú 23 starfsmenn, flestir í
hlutastörfum þannig að stöðugildi eru 13. Starfsmannafjöldi hefur verið
svipaður frá upphafi. Það hefur verið ómetanlegur styrkur fyrir
rannsóknarstarfsemina að sömu starfsmennirnir hafa af miklum áhuga og
samviskusemi unnið árum eða áratugum saman við stöðina. Þetta hefur
tryggt áreiðanleika á niðurstöðum rannsókna og auðveldað allan
samanburð frá einum tíma til annars.
Hóprannsókn skipulögð
Árið
1965 hafði verið ákveðið að framkvæma umfangsmikla hóprannsókn m.t.t.
hjarta- og æðasjúkdóma. Formaður Hjartaverndar, próf. Sigurður
Samúelsson, og Ólafur Ólafsson, læknir, sem hafði verið ráðinn
yfirlæknir rannsóknarstöðvarinnar, áttu viðræður við Dr. Zbynek Pisa,
forstöðumann Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í
Kaupmannahöfn, og aðstoðarmenn hans. Veittu þeir ýmis ráð um framkvæmd
hóprannsóknarinnar. Einnig styrkti stofnunin námsdvöl Ólafs Ólafssonar
við London School of Hygiene and Tropical Medicine til að kynna sér
aðferðir við faraldsfræðilegar rannsóknir hjarta- og æðasjúkdóma. Vorið
1967 voru síðan ráðnir aðstoðarlæknir (Nikulás Sigfússon),
lífefnafræðingur (Þorsteinn Þorsteinsson) og ráðgjafar í tölfræði (Ottó
J. Björnsson, tölfræðingur) og tölvuvinnslu (Helgi Sigvaldason, lic.
tech.). Þessir aðilar ásamt próf. Davíð Davíðssyni, yfirlækni
rannsóknarstofu, unnu síðan að skipulagningu hóprannsóknarinnar og var
þeirri vinnu lokið um haustið 1967. Til rannsóknar voru valdir 16
árgangar karla og kvenna á Reykjavíkursvæðinu á aldursbilinu 34-61 árs.
Síðar var bætt við hóprannsóknina 12 árgöngum, þannig að hún náði til
allra karla sem fæddir eru 1907-1934 og allra kvenna fæddra 1908-1935.
Alls voru þetta 14.925 karlar og 15.873 konur eða samtals 30.798 manns.
Þessum hóp var skipt niður í 6 minni hópa eftir ákveðnum fæðingardögum
(tæplega 3000 manns í hverjum hóp) og hópunum boðið til rannsóknar
samkvæmt fyrirkomulagi sem sýnt er á mynd 1.
|
HÓPRANNSÓKN HJARTAVERNDAR
Karlar
Skipulag

Konur hafa verið rannsakaðar eftir sama kerfi og karlar en kvennarannsóknin hófst 1968 og lauk á síðasta ári.
|
Framkvæmd hóprannsóknarinnar
Í
öll þau ár sem rannsóknin stóð var lögð áhersla á að framkvæma mælingar
á sama hátt, þ.e. að vinna eftir stöðluðum aðferðum en þetta er
nauðsynlegt vegna samanburðar frá einum tíma til annars.
Rannsóknar-"prógrammið" var óbreytt allan rannsóknartímann. Lögð var
áhersla á athugun á helstu áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma.
Heilsufarssaga var könnuð með sérstökum spurningalista, á
rannsóknarstöðinni voru gerðar ýmsar mælingar (sjá töflu I) og loks fór
fram læknisskoðun. Þátttakendur í hópskoðuninni komu tvisvar á
rannsóknarstöðina, fyrst voru tekin próf og gerðar mælingar,
niðurstöður voru tilbúnar nokkrum dögum síðar og kom þá gesturinn í
læknisskoðun.
|
Tafla 1
HÓPRANNSÓKN HJARTAVERNDAR
|
|
|
|
1.
|
Spurningalisti um heilsufar
|
|
|
2.
|
Rannsóknir:
Hæð
Þyngd
Beinamælingar
Þykkt húðfellinga
Öndunarpróf
Augnþrýstingur
Blóðþrýstingur
Hjartalínurit
(Áreynslu-hjartalínurit)
Röntgenmynd (hjarta og lungu)
Kólesteról
|
Þríglyceríð
HDL
Sykurþolspróf
Þvagsýra
Kreatínín
Bilirúbín
Alkal. fosfatasi
Hemóglóbín
Hematókrít
Blóðsökk
Þvagrannsókn
|
|
3.
|
Læknisskoðun
|
|
Fyrstu tölvuskráðu sjúkraskýrslur
Frá
upphafi hafa allar niðurstöður hóprannsóknarinnar verið tölvuskráðar,
og tölvuskráð sjúkraskrá var hönnuð þegar í upphafi rannsóknarinnar, -
hin fyrsta hér á landi. Í þessa sjúkraskrá eru færðar sjúkrasaga,
niðurstöður prófa og rannsókna, niðurstöður læknisskoðunar og
sjúkdómsgreiningar og ráðleggingar ef einhverjar eru. Afrit sjúkraskrár
er sent heimilis- eða heilsugæslulækni og þátttakanda vísað til þeirra
ef frekari rannsóknar eða meðferðar er þörf þar sem meðferð er ekki
veitt á Rannsóknarstöð Hjartaverndar.
Gæðaeftirlit
Það
er grundvallaraðriði við langtímarannsóknir eins og hóprannsókn
Hjartaverndar að rannsóknaraðferðir séu staðlaðar og skekkjumörk þeirra
séu þekkt. Því hefur frá upphafi verið lögð mikil áhersla á allt
gæðaeftirlit. Blóðfitumælingar hafa verið undir eftirliti alþjóðlegra
viðmiðunarstöðva (Center for Disease Control, Atlanta, USA og World
Health Organization Lipid Reference Laboratory, Prag), sömuleiðis
túlkun hjartalínurita (World Health Organization Reference Centre for
ECG coding, Hungarian Institute of Cardiology, Budapest) o.fl. Mælitæki
eru yfirfarin og prófuð reglulega. Áreiðanleiki spurningalista hefur
verið metinn með ýmsum aðferðum. Með nákvæmu gæðaeftirliti er reynt að
tryggja að niðurstöður rannsókna séu sem réttastar og sambærilegar frá
einum tíma til annars.
Aðrar hóprannsóknir Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar
Fljótlega
eftir að stöðin tók til starfa var ákveðið að bjóða öllum Íslendingum
sem búsettir voru utan Reykjavíkursvæðisins og voru á aldrinum 41-60
ára til skoðunar. Var í þessu skyni komið upp rannsóknarstöðvum sem
störfuðu tímabundið víða um land. Heilsugæslulæknar og sjúkrahúslæknar
veittu í þessu sambandi ómetanlega aðstoð. Þó að nokkurt hlé hafi orðið
á þessum rannsóknum vegna fjárskorts, tókst þó að ljúka skoðun í öllum
fjölmennustu sýslum landsins. Hafa þannig um það bil 85% Íslendinga á
aldrinum 41-60 ára fengið boð frá Hjartavernd. Á mynd 2 eru sýnd þau
svæði á landsbyggðinni þar sem hópskoðun hefur farið fram.
MONICA-rannsóknin
Síðan
1981 hefur Rannsóknarstöð Hjartaverndar tekið þátt í fjölþjóðlegri
rannsókn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar á hjarta- og æðasjúkdómum
svonefndri MONICA-rannsókn. Þessari rannsókn er ætlað að leiða í ljós
áhrif ýmissa áhættuþátta á tíðni hjarta- og æðasjúkdóma (kransæðastíflu
og slags) svo unnt verði að beita forvörnum á árangursríkari hátt en
verið hefur. Þessi rannsókn er fólgin í skráningu allra tilfella
kransæðastíflu á landinu öllu meðal fólks á aldrinum 25-74 ára, en auk
þess hafa farið fram 3 áhættuþáttakannanir (1983, 1988 og 1993) og
athugun á meðferð kransæðastíflu 1983 og 1993. Í rannsókninni taka þátt
27 þjóðir með 53 rannsóknarstöðvar. Rannsóknin nær til 12 milljón manna
og er langstærsta faraldsfræðilega rannsókn sem gerð hefur verið til
þessa. Ísland hefur þá sérstöðu í þessu sambandi að rannsóknin nær til
heillrar þjóðar, í öðrum löndum er rannsóknin bundin við sérstök
landssvæði eða borgir.
Rannsókn á ungu fólki
Hóprannsókn
Hjartaverndar nær til fólks sem 1967 var á aldrinum 34-61 árs. Þegar
niðurstöður varðandi áhættuþætti kransæðasjúkdóms lágu fyrir eftir
fyrsta áfanga hóprannsóknarinnar varð ljóst að nauðsynlegt var að fá
upplýsingar um þessa þætti meðal yngra fólks. Árið 1973 fór því fram
úrtakskönnun á fólki á aldrinum 20-34 ára. Þessu fólki var síðan boðið
aftur til rannsóknar 1983.
Öldrunarrannsókn árið 1991- 1997
Þegar
síðasti áfangi Hóprannsóknar Hjartaverndar hófst voru yngstu
þátttakendurnir orðnir 57 ára en þeir elstu 84 ára. Ákveðið var að nota
tækifærið í þessum áfanga og rannsaka sérstaklega ýmis konar
heilsufarsleg og félagsleg atriði sem sérstaklega tengjast öldruðu
fólki. Björn Einarsson, sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum, var ráðinn
til stöðvarinnar og annaðist hann framkvæmd þessarar rannsóknar. Öllum
þátttakendum í hóprannsókninni sem orðnir voru 70 ára var, auk
venjulegra rannsókna hóprannsóknarinnar, boðið upp á ýmis konar
sérhæfðar rannsóknir. Megintilgangur þessarar rannsóknar er að kanna
hvort elliglöp (Alzheimer sjúkdómur) stafi af æðakölkun í heilaæðum.
Þessi rannsókn hófst 1991 og síðasti þátttakandinn kom til skoðunar í
nóvember 1997.
Rannsóknir á fólki utan hópskoðana
Á
rannsóknarstöðina hefur á hverju ári komið talsverður hópur fólks sem
þangað er vísað til rannsóknar af læknum eða leitar sjálft vegna
einkenna. Einnig hafa ýmis fyrirtæki kostað rannsóknir á starfsfólki
sínu.
108.000 skoðanir
Á þeim 30 árum sem
rannsóknarstöðin hefur starfað hefur mikill fjöldi einstaklinga komið
þangað til skoðunar. Í töflu II er yfirlit yfir fjölda
einstaklingsskoðana á Rannsóknarstöð Hjartaverndar frá upphafi. Nokkur
hluti skoðaðra hefir komið oftar en einu sinni þannig að fjöldi
einstaklinga sem skoðaður hefur verið á stöðinni er nokkru minni en
taflan segir til um. Aldursmörk fyrir skoðun á Rannsóknarstöð
Hjartaverndar eru 15 ár. Mjög fáir yngri en 20 ára hafa verið skoðaðir.
Samkvæmt þjóðskrá voru Íslendingar eldri en 20 ára alls 168.000 árið
1990. Það er því ljóst að verulegur hluti fullorðinna Íslendinga hefur
einhvern tíma verið skoðaður á Rannsóknarstöð Hjartaverndar.
|
Tafla 2
VÍSINDALEGAR HÓPRANNSÓKNIR HJARTAVERNDAR
|
|
|
|
Áfangi
|
Fjöldi skoðana
|
|
|
|
|
Karlar
|
Konur
|
|
1.
|
Hóprannsókn Hjartaverndar
|
|
|
|
á Reykjavíkursvæðinu
|
I-V
|
18.903
|
17.061
|
|
2.
|
Hóprannsókn Hjartaverndar
|
|
|
|
á Reykjavíkursvæðinu
|
|
|
|
Öldrunarrannsókn
|
V-I
|
834
|
1.211
|
|
|
Aðrar rannsóknir
|
V-I
|
414
|
118
|
|
3.
|
"Ungt fólk" í Reykjavík
|
I-II
|
1.596
|
1.764
|
|
4.
|
Árnessýsla
|
I
|
875
|
802
|
|
5.
|
MONICA-rannsókn
|
I-III
|
3.193
|
3.389
|
|
AÐRAR RANNSÓKNIR HJARTAVERNDAR
|
|
1.
|
Rannsóknir utan Reykjavíkur
|
|
3.709
|
3.677
|
|
2.
|
Rannsóknir fólks utan hópskoðana
|
|
29.917
|
20.994
|
|
|
|
Alls
|
59.441
|
49.016
|
Samstarf við innlenda og erlenda aðila
Hóprannsókn
Hjartaverndar er sérstök að því leyti að hún nær til mjög stórs hóps
sem fylgt er eftir í langan tíma. Má því ætla að niðurstöður
rannsóknarinnar gefi góða mynd af heilbrigðisástandi þjóðarinnar á
hverjum tíma og þeim breytingum sem verða í tímans rás. Rannsóknin
hefur því gefið möguleika á ýmis konar faraldsfræðilegum athugunum
öðrum en þeim sem eru á hinni hefðbundnu rannsóknaráætlun
Hjartaverndar. Rannsóknarstöð Hjartaverndar hefur átt samstarf við
marga vísindamenn innanlands og utan um margvísleg rannsóknarverkefni.
Nokkur helstu verkefnin af þessu tagi eru talin upp í töflu III. Alls
hafa á annað hundrað vísindamenn á ýmsum sviðum unnið um lengri eða
skemmri tíma að rannsóknarverkefnum í samvinnu við Rannsóknarstöð
Hjartaverndar.
|
Tafla 3
RANNSÓKNARSTÖÐ HJARTAVERNDAR
Rannsóknarverkefni unnin í samvinnu við innlenda og erlenda aðila
|
|
MONICA-rannsókn
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
Community Control of Hypertension
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
Samanburðarrannsókn á Íslendingum og Vestur-Íslendingum í Kanada
Háskóli Íslands, Manitoba-háskóli, Texas Tech - háskóli
Rannsókn á gigtarþætti og liðagigt
Landspítali, Karólínska sjúkrahúsið
Rannsókn á skammvinnri heilablóðþurrð
Landspítali, taugasjúkdómadeild
Rannsókn á hjartavöðvasjúkdómi
Landspítali, lyflækningadeild
Rannsókn á hægra greinrofi Rannsókn á vinstra greinrofi
Landspítali, lyflækningadeild
Rannsókn á forhólfaflökti
Landspítali, lyflækningadeild
Rannsókn á járnbúskap
Landspítali, Rannsóknadeild í blóðmeinafræði
Rannsókn á beinþynningu
Borgarspítali, lyflækningadeild
Rannsókn á tannheilsu
Háskóli Íslands, tannlæknadeild
Rannsókn á háþrýstingi eftir fæðingareitrun
Landspítali, kvensjúkdómadeild
Rannsókn á fitusýrum
Landspítali, lífefnafræðideild; Borgarspítali, lyflækningadeild
Rannsókn á andoxunar-vítamínum og fjölómettuðum fitusýrum
Háskólinn í Basel, Hoffman La Roche
Skjaldkirtilsrannsókn
Lyflækningadeild Landspítalans, Aarhus Amtssygehus
Rannsókn í samvinnu við Krabbameinsskrá
Krabbameinsskrá
Mæling á blóðfitu
Manneldisráð
Mælingar á blóðfitum Apo A, B og (a)
Borgarspítali, lyflækingad., Rannsóknarstofa Háskólans í lífeðlisfræði
Rannsókn á blóðflæði í ganglimum
Rannsóknarstofa Landspítalans (æðaranns.)
NORA-samvinnuverkefni
Öll Norðurlöndin
Rannsókn á áfengisneyslu
Landspítalinn, lyflækningadeild
Rannsókn aldraðra á langlegudeildum
Borgarsp. lyflækningad.
Rannsókn á blóðþurrðarhelti
Borgarsp. lyflækningad.
Rannsókn á blóðstorkuþáttum
MONICA-rannsókn
Rannsókn á sykurþoli og blóðþrýsting
Karl Kristjánsson, læknir
Rannsókn á blóðþrýstingsmeðferð aldraðra karla
Landsp., lyflækningadeild
Rannsókn á AV-leiðnitruflun
Landspítali, lyflækningadeild
Rannsókn á týpu II sykursýki
Borgarspítali, lyflækningadeild
Rannsókn á lúpínuseyði
Háskóli Ísl., raunvísindadeild,Rannsóknarstofa Landspítalans í ónæmisfræði
|
Hvað hefur hóprannsóknin leitt í ljós?
Þegar
Rannsóknarstöð Hjartaverndar tók til starfa haustið 1967 var lítið
vitað um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma hér á landi. Eftir fyrstu
áfanga hóprannsóknarinnar hafði fengist mikilvæg visneskja um þessi
mál. Í ljós kom að blóðfita (kólesteról) var með því hæsta sem gerðist
meðal þjóða. Í flestum tilvikum vissi viðkomandi ekki um blóðfitugildi
sitt því á þessum tíma voru blóðfitumælingar ekki orðnar almennar.
Háþrýstingur - hækkaður bóðþrýstingur - var álíka algengur og meðal
annarra þjóða, um það bil fimmti hver karl og kona reyndist hafa
hækkaðan blóðþrýsting. Um það bil þrír af hverjum fjórum körlum vissu
ekki um sinn háþrýsting þegar þeir komu til skoðunar og um helmingur
kvenna var með áður óþekktan háþrýsting. Margir þeirra sem voru með
þekktan háþrýsting voru ekki á fullnægjandi meðferð. Reykingar voru
algengar bæði meðal karla og kvenna. Um 58% karla á aldrinum 45-64 ára
reyktu en um 44% kvenna. Þessir þrír áhættuþættir - hækkuð blóðfita,
hækkaður blóðþrýstingur og reykingar - skipta mestu máli fyrir hjarta-
og æðasjúkdóma þó ýmsir aðrir þættir komi þar við sögu eins og offita,
hreyfingarleysi, streita, sykursýki o.fl. Sú vitneskja sem fékkst úr
fyrstu áföngum hóprannsóknarinnar um helstu áhættuþætti okkar
Íslendinga er sá grundvöllur sem forvarnaraðgerðir undanfarna tvo
áratugi hafa byggst á.
Hvernig hafa niðurstöður verið kynntar?
Í
hóprannsókn Hjartaverndar hefur safnast saman geysilegt magn
heilsufarsupplýsinga. Um það bil 850 atriði eru skráð um hvern
einstakling í hóprannsókninni, samtals þannig um 25 milljón atriði.
Lögð hefur verið áhersla á að kynna niðurstöður eins fljótt og hægt er
bæði fyrir almenning og vísindamenn. Í kynningu fyrir almenning hafa
fjölmiðlar verið notaðir sem og fræðslufundir af ýmsu tagi. Á
vísindasviðinu hafa verið birtar um 350 vísindalegar greinar og rit og
á læknaþingum bæði innanlands og utan verið flutt fjölmörg erindi. Tvær
doktorsritgerðir sem byggjast á efnivið Hjartaverndar hafa verið varðar
og nokkrar eru í vinnslu.
Hafa áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma breyst?
Hóprannsókn
Hjartaverndar var þannig skipulögð í upphafi að hægt yrði að fylgjast
með þróun áhættuþátta og tíðni hjarta- og æðasjúkdóma hér á landi.
Eftir 1970 hefur þróun helstu áhættuþátta verið mjög hagstæð. Blóðfita
(kólesteról) hefur lækkað um 7% meðal karla og um 11% meðal kvenna.
Blóðþrýstingur hefur lækkað verulega bæði meðal karla og kvenna. Þessi
lækkun er án efa að verulegu leyti að þakka mjög bættri meðferð
háþrýstings. Flestallir einstaklingar með hækkaðan blóðþrýsting vita nú
af því og eru í eftirliti og meðferð hjá sínum heimilis- eða
heilsugæslulækni. Mikil minnkun hefur orðið á tíðni reykinga,
sérstaklega meðal karla. Hlutfall þeirra sem reykja hefur þannig lækkað
úr 58% í um 25% meðal karla en úr 44% í um 30% meðal kvenna. Sumir
aðrir áhættuþættir hafa breyst til batnaðar, þannig hefur reglubundin
líkamsþjálfun aukist verulega sl. tvo áratugi.
Hjarta- og æðasjúkdómar á undanhaldi
Í
hóprannsókn Hjartaverndar hefur verið fylgst náið með dánartíðni vegna
hjarta- og æðasjúkdóma en auk þess hefur tíðni kransæðastíflu -sem er
algengasti hjartasjúkdómurinn- verið skráð nákvæmlega allt frá árinu
1981. Þessi skráning (MONICA-rannsókn) nær til allra karla og kvenna á
landinu á aldrinum 25-74 ára. Hvaða breytingar hafa nú orðið á tíðni
helstu hjarta- og æðasjúkdómanna? Samkvæmt MONICA-skráningunni lækkaði
dánartíðni vegna kransæðastíflu um 53% meðal karla á tímabilinu
1981-1994 og heildartíðni kransæðastíflu lækkaði á sama tíma um 44%.
Meðal kvenna lækkaði dánartíðnin á sama tíma um 32% og heildartíðnin
(bæði lifandi og látnir) um 36%. Samkvæmt heilbrigðisskýrslum hefur
dánartíðni vegna slags (heilablæðingar - blóðtappa í heila) farið jafnt
og þétt lækkandi allt frá árinu 1950. Nemur þessi lækkun um 50% meðal
karla en um 60% meðal kvenna. Það er þannig ljóst að tíðni helstu
hjarta- og æðasjúkdómanna hefur lækkað verulega undanfarna tvo og
hálfan áratug. Athugun sýnir að lækkunin á tíðni kransæðastíflu meðal
karla hefur átt sér stað nokkrum árum á eftir lækkun áhættuþáttanna.
Meðal kvenna hefur lækkunin á dánartíðni nokkurn veginn fylgt
lækkuninni á áhættuþáttunum.
Ný hóprannsókn hafin - afkomendarannsókn
Fyrir
nokkrum árum hófst undirbúningur að næstu hóprannsókn Hjartaverndar.
Ákveðið var að einbeita kröftunum að því að rannsaka þátt erfða í
tilkomu hjarta- og æðasjúkdóma. Á sviði erfðafræði hafa orðið miklar
framfarir á síðustu árum og möguleikar á að hafa áhrif á þróun
arfgengra sjúkdóma eru nú í augsýn. Til að nýta enn frekar þær
upplýsingar sem nú þegar eru fyrir hendi úr Hóprannsókn Hjartaverndar
var ákveðið að velja nýjan rannsóknarhóp á eftirfarandi hátt: Í
rannsóknarhópnum eru börn þeirra einstaklinga í Hóprannsókn
Hjartaverndar sem fengið hafa kransæðastíflu á tímabilinu 1967-1992.
Alls eru þetta á sjötta þúsund einstaklingar. Til samanburðar er valinn
annar hópur, börn einstaklinga í hóprannsókninni, sem ekki hafa fengið
kransæðastíflu. Alls eru í afkomendarannsókn um 8.000 einstaklingar.
Rannsóknin hófst á sl. ári og er gert ráð fyrir að gagnasöfnun ljúki
árið 2000. Til að annast erfðafræðilegar rannsóknir var ráðinn
sérfræðingur, dr. Vilmundur Guðnason, og hefur hann séð um að koma upp
rannsóknarstofu í erfðafræði á Rannsóknarstöð Hjartaverndar. Rannsóknir
eru þegar hafnar.
Höfundur, Nikulás Sigfússon, dr.med. fyrrverandi yfirlæknir Hjartaverndar.
Áður birt í Tímaritinu Hjartavernd, 34.árgangur, 1.tbl. 1997
|