Öldrunarrannsókn 1. áfangi
Myndgreining
|
| Myndgreining |
|
Myndgreiningardeildin er stór þáttur í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Deildin er staðsett á annarri hæð rannsóknarstöðvarinnar í u.þ.b. 600 m2 húsnæði. Þar starfa um 20 einstaklingar, þar á meðal röntgenlæknar, geislafræðingar og tæknimenn, en þar fyrir utan tengist fjöldi innlendra og erlendra vísindamanna og ráðgjafa starfsemi deildarinnar.
Á deildinni eru framkvæmdar fjölbreyttar rannsóknir af nær öllum líffærakerfum. Yfirgripsmikil rannsókn sem snýr að byggingu og virkni heila er gerð með segulómun. Þá á að nota segulómun til að greina hjartadrep og virkni hjartavöðva en sú rannsókn er ein sú stærsta sem gerð hefur verið í heiminum með þessari tækni.
Eins og fjallað hefur verið um eru framkvæmdar rannsóknir á augum og eyrum í þriðju heimsókn Öldrunarrannsóknarinnar. Rannsókn á augum felur í sér mælingu á sjón, augnþrýstingi og myndatöku á augnbotnum. Í myndatöku á augnbotnum eru teknar ljósmyndir af sjónhimnu. Markmiðið með myndatökunni er fyrst og fremst að kanna samband æðasjúkdóma í sjónhimnu og almennra hjarta- og æðasjúkdóma. Þannig eru myndirnar notaðar til að greina þrengingar í slagæðum, æðahnúta, æðagúl og blæðingar í sjónhimnu. Að auki verða kannaðar aðrir aldurstengdir sjúkdómar í auga eins og hrörnun sjónhimnu, bæði í einstaklingum með og án sykursýki. Við myndatökuna er notuð sérhönnuð myndavél með afar sterkri aðdráttarlinsu. Myndir með mjög háa línuupplausn eru nauðsynlegar til að hægt sé að greina smáar sjónhimnubreytingar. Venjulega hefur augnbotnamyndataka einungis verið framkvæmd með því að nota filmur sem myndmóttakara þar sem línuupplausn hefur ekki verið nægjanleg með stafrænni tækni. Þróun í stafrænni ljósmyndun hefur þó verið hröð og í Öldrunarrannsókninni er í fyrsta skipti í faraldsfræðiverkefni notuð alstafræn myndavél í myndatöku á augnbotnum. Augnbotnamyndirnar hafa 6,3 milljón punkta (pixla) upplausn. (Greinar og fræðsluefni um rannsóknir á augum og eyrum í Öldrunarrannsókninni HÉR).
Heilabilun er sá þáttur í heilsu aldraðra sem hefur hvað afdrífaríkust áhrif á lífsgæði einstaklingsins og færni til daglegra athafna. Þetta er einnig sá þáttur sem kallar á mesta umönnun fyrir einstaklinginn heima og segir oft til um hvort þörf sé á búsetu á dvalarstofnun aldraðra eða hjúkrunarheimilum.
Í Öldrunarrannsókninni hafa verið skipulagðar nokkrar hliðarrannsóknir þ.e. aukarannsóknir sem aðeins ná til hluta þátttakenda. Ein þessara hliðarrannsókna er viðamikil rannsókn af hjarta með segulómun sem mun ná til amk 700 einstaklinga. Tilgangurinn er að kanna eiginleika og tíðni svokallaðs þöguls hjartadreps og greiningarnæmni segulómunar af þessum sjúkdómi miðað við greiningarnæmni hefðbundins hjartalínurits.
Beinþynning er vaxandi vandamál aldraðra og eitt af þeim vandamálum sem hafa veruleg áhrif á færni einstaklingsins. Beinbrot, bæði samfallsbrot á hrygg, lærleggsbrot og handarbrot eru stórt vandamál hjá öldruðum. Mikilvægt er að reyna að greina þá þætti sem ákvarða hættu á beinþynningu. Með þeim aðferðum sem beitt verður í Öldrunarrannsókninni er vonast til að hægt verði að auka upplýsingar um þá þætti sem áhrif hafa á beinþynningu, slitgigt og brothættu. Með TS eru teknar myndir af lendhrygg og mjöðmum til að meta ástand beins. Fjöldi Linux vinnustöðva ásamt forriti sem sérstaklega var hannað fyrir þessa rannsókn er notað til að mæla beinþéttni ásamt lögun beins. Nýung er að nota TS tækni við beinþéttnimælingar og hefur það aldrei verið gert áður í heiminum í jafn miklu mæli og í Öldrunarrannsókninni. Hin hefðbundna aðferð við að mæla beinþéttni er að nota tvívíða röntgenmyndatöku sem hefur þá takmörkun að myndbjögun eftir vörpun myndefnis á mynd er algeng. Í TS eru myndirnar unnar í þrívídd sem stórlega dregur úr þessari bjögun sem gefur nákvæmari niðurstöður um beinþéttni og beinlögun. Sérstaklega skal bent á að með þessari rannsókn fást í fyrsta sinn upplýsingar um beinþynningu íslenskra karlmanna (MYND 10a og 10b).
Ómun er notuð til að taka myndir af hálsslagæðum og hjarta. Í rannsókn af hálsslagæðum eru teknar myndir til að meta þykkt æðaveggja ásamt stífleika æða. Faraldsfræðirannsóknir hafa áður sýnt fram á tengsl þykktar hálsslagæðaveggjar og stífni hálsslagæðar við hjarta- og æðasjúkdóma. Þá hefur nýlega verið sýnt fram á skýrt samband á milli kalkútfellinga í kransæðum og þykktar hálsslagæðaveggja. Ómrannsóknin af hálsslagæðum getur því skilað mjög mikilvægum upplýsingum um aldurstengda þróun á kalkmyndunum í æðum og um hjarta- og æðasjúkdóma almennt.
Hver einstök myndgreiningarrannsókn er viðamikil og felur í sér mikið magn mynda auk textaskráningar samfara gæðaeftirliti rannsókna og úrvinnslu mynda. Öll myndgögn eru geymd í PACS og textagögn eru geymd i ORACLE gagnagrunni Hjartaverndar. Fyrir hvern og einn af þeim 8000 einstaklingum sem áætlað er að muni taka þátt í Öldrunarrannsókninni eru teknar myndir sem krefjast um 600 MB (megabitum) af geymslurými. Þá hafa verið skilgreindar um 12000 breytur fyrir hvern þátttakanda sem endurspeglar hið gríðarmikla magn upplýsinga sem safnað er í rannsókninni. Hér verður gerð grein fyrir hvernig gagnakerfið er byggt upp m.t.t. flutnings og geymslu gagna.
PACS
PACS (Picture Archiving Computer System) tengir myndatöku við myndgagnageymslu og myndgagnaúrvinnslu. Eftir að myndir eru teknar með ómun, segulómun og tölvusneiðmyndum eru allar persónuupplýsingar þ.e. nafn og kennitala þátttakenda, fjarlægðar af myndum og í staðin eru myndirnar merktar með 10 stafa leyninúmeri í sérstakri tölvu. Þá eru myndir fluttar í myndgeymslu sem samanstendur af tveimur 6,4 TB (terabita) arkífum. Þetta fyrirkomulag er haft á til að tryggja öryggi gagnanna. Arkífin tvö eru eftirmynd hvors annars og vista nákvæmlega sömu gögn. Þau eru geymd í eldvörðum herbergjum í sitt hvorri byggingunni. Frá arkífunum eru myndirnar fluttar sjálfkrafa til mismunandi vinnustöðva þar sem úrvinnsla mynda fer fram. Flutningur textagagna
Um leið og myndatöku með ómun, segulómun, tölvusneiðum og augnbotnamyndavél er lokið eru allar myndir metnar m.t.t. myndgæða og gerð er grein fyrir hugsanlegum frávikum í framkvæmd myndatökunnar. Um er að ræða viðamikla skráningu sem getur tekið jafnlangan tíma og myndatakan sjálf. Allar þessar upplýsingar eru skráðar í RIS (Radiology Information System) og því næst eru gögnin flutt í ORACLE gagnagrunn stofnunarinnar. Eftir að myndir hafa verið unnar í úrvinnslu-vinnustöðvunum eru niðurstöður í formi texta fluttar í ORACLE gagnagrunninn. Öflugt gæðaeftirlit er forsenda þess að hægt verði að ná markmiðum rannsóknarinnar. Því gegnir gæðaeftirlit stóru hlutverki á öllum stigum Öldrunarrannsóknarinnar, jafnt við þjálfun starfsfólks, framleiðslu grunngagna og úrvinnslu niðurstaða. Um leið og allar myndir hafa verið teknar eru þær greindar með tilliti til myndgæða og hugsanlegra útlitsfrávika sem geta haft áhrif á niðurstöður. Það sama á við um ferlið sem við tekur þ.e. myndaúrvinnsluna sjálfa. Allar niðurstöður gæðaeftirlits á myndum eru skráðar í gagnagrunn Öldrunarrannsóknarinnar.
Sú gagnasöfnun og gagnaúrvinnsla sem Öldrunarrannsóknin hefur í för með sér, hefur gefið starfsmönnum kjörið tækifæri á að samnýta starfið til náms, t.d. meistara - eða doktorsnáms. Einnig hafa nemar úr Háskóla Íslands (HÍ) og Tækniháskóla Íslands (THÍ) lagt stund á rannsóknir í Hjartavernd í tengslum við lokaverkefni. Þetta á ekki síst við um starfsemi myndgreiningardeildar. Um helmingur geislafræðinga á deildinni leggur stund á meistaranám í læknadeild HÍ samfara almennu starfi. Lokaverkefni og önnur námstengd verkefni sem unnin hafa verið á myndgreiningardeild Hjartaverndar er að finna HÉR.
|