Ferlið

Ferli þátttakenda í gegnum Öldrunarrannsókn Hjartaverndar
Þátttakendur í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar ganga í gegnum vel skilgreint og skipulagt ferli.  Þegar þátttakendur hafa lokið öllum skoðunum og mælingum í rannsókninni, hefur Hjartavernd safnað miklu magni af upplýsingum um viðkomandi.

Þátttakendur í rannsókninni fá að sjálfsögðu að njóta góðs af þátttöku sinni og munu þeir fá ítarlega skýrslu um almennt heilsufars ástand sitt.  Ef í ljós kemur að þátttakandi þarf á áframhaldandi læknishjálp að halda, þá verður viðkomandi vísað á réttar brautir í heilbrigðiskerfinu.

Hér fyrir neðan má sjá gróft flæðirit af ferlinu sem þátttakendur fara í gegnum þegar þeir koma í rannsóknina: