Almenn rannsókn

Í sinni fyrstu heimsókn í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar fara þátttakendur í gegnum ýmsar almennar rannsóknir.  Hluti af þessum rannsóknum er sá sami og fólk fer í Áhættumati Hjartaverndar en aðrar rannsóknir bætast þar að auki við. Öldrunarrannsókn Hjartaverndar er mun umfangsmeiri en fyrri áfangar í Hóprannsókn Hjartaverndar.

Almennar rannsóknir í fyrstu heimsókn
Þessi hluti rannsóknarinnar tekur um það bil 25 – 30 mínútur.  Hver mæling frá 1 – 10 mínútur.  Þátttakendur fá að vita strax útkomu úr blóðþrýstingsmælingu, hæðar- og þyngdarmælingu og ummáli, ef þeir óska eftir því.  Annars fá þeir helstu niðurstöður í skýrslu í útskriftarviðtali hjá lækni við lok þriðju komu.  Hjartalínuritið er metið af hjúkrunarfræðingi á meðan þátttakandi er í rannsókn með tilliti til alvarlegra einkenna. Annars fer læknir yfir það í lok dags.

Helstu rannsóknir í fyrstu komu eru:
Hjartalínurit
Þessi mæling tekur um 4 - 6 mínútur í framkvæmd.  Þarna er aðeins eitt rit tekið sem lesið er úr samdægurs. 
Ef alvarleg einkenni koma fram á línuriti þá er haft samband við lækni sem ræðir við þátttakanda.

Beinþéttnimæling
Þessi mæling metur beinþéttni þátttakanda út frá röntgenmynd af beini í hæl á hægri fæti þátttakanda.  Þetta er mæling sem tekur um 1 - 2 mínútur í framkvæmd.  Þarna er tekin ein mæling sem þátttakandi fær að vita niðurstöðu úr þegar hann fer í viðtal hjá lækni.

Hæðarmæling
Það tekur um það bil 1-2 mínútur að framkvæma þessa mælingu.  Hæðin er mæld tvisvar sinnum og ef munur milli þessara tveggja mælinga er of mikill þá þarf að taka aðrar tvær mælingar.  Þarna getur þátttakandi strax fengið að vita sína mælingu.

Þyngdarmæling
Þyngdarmælingin er með sama sniði og hæðarmælingin.  Mælingin tekur um það bil 1-2 mínútur að framkvæma og mælt er tvisvar sinnum og ef of mikill munur er á milli þessara tveggja mælinga þá þarf að mæla aftur.
Þarna getur þátttakandi fengið að vita strax sína mælingu.

Ummál kviðar
Ummál kviðar er mælt með sama sniði og hæð og þyngd.  Það tekur um það bil 1-2 mínútur að framkvæma þessa mælingu.  Þarna er mælt tvisvar sinnum og ef of mikill munur er á milli þessara tveggja mælinga þá þarf að mæla aftur.
Þarna getur þátttakandi fengið að vita strax sína mælingu.

Blóðþrýstingsmæling
Það tekur um það bil 5 - 7 mínútur að framkvæma blóðþrýstingsmælinguna. Blóðþrýstingur er mældur tvisvar sinnum.  Þátttakandi getur fengið að vita um sínar mælingar strax ef hann vill.  Ef hann er með óeðlilega háa mælingu er haft samband við lækni sem metur stöðuna og ræðir við þátttakanda ef þarf á að halda.

 

Fitumæling
Þessi mæling metur fitumagnið í líkamanum.  Þetta er einföld mæling sem tekur u.þ.b. 3 - 5 mínútur að framkvæma.  Gerð er ein mæling.  Niðurstaðan er svo reiknuð út og fær þátttakandi að vita sína niðurstöðu í útskriftarviðtali hjá lækni við lok þriðju komu.

Blóðtaka
Í blóðtökunni eru teknir 100 ml af blóði og sýnið sent á rannsóknastofu Hjartaverndar.  Þar er blóðið greint og fær þátttakandi að vita niðurstöður úr þeirri greiningu í útskriftarviðtali hjá lækni við lok þriðju komu.  Það tekur um það bil 10 mínútur að framkvæma þessa mælingu.

Vitræn próf
Auk ofantaldra almennra rannsókna eru svokölluð vitræn próf lögð fyrir þátttakendur þar sem þátttakendur eru prófaðir í ýmsum þrautum sem reyna á leikni hugans. Meðal þeirra prófa sem lögð eru fyrir er MMSE (Mini Mental State Examiniation). Fagfólk getur fengið sendar leiðbeiningar (Manual) um fyrirlögn og skorun með því að senda tölvupóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .

Hreyfifærni
Einnig fara þátttakendur í hreyfifærni þar sem þeir eru prófaðir í ýmsum þáttum sem snúa að líkamlegu atgervi þeirra.