Undirbúningur

Í heild sinni mun rannsóknin taka um eina og hálfa klukkustund.
Vinsamlega athugið að taka með lyfjakort- eða lyfjaglös takir þú einhver lyf.

Allir sem gefa upp tölvupóstfang geta fengið lykilorð að spurningalista á netinu.
Hjartavernd fer fram á að allir þátttakendur reyni að svara á netinu sé þeim það unnt því það sparar tíma við rannsóknina.
Ekki þarf undirbúning að öðru leyti nema að vera fastandi á mat og drykk frá kl. 22:00 kvöldið fyrir komu.