Áhættuþáttakönnun
Blóðrannsóknir
|
| Blóðrannsóknir |
|
Mældir verða ýmsir þættir í blóði sem tengjast áhættu fyrir hjartasjúkdóma eins og blóðfita (kólesteról, þríglýseríð, HDL-kólesteról) og blóðsykur.Úr sama blóðsýni verður heilblóð, blóðvatn og erfðaefni (DNA) einangrað og geymt í lífsýnabanka Hjartaverndar. Erfðaefni verður notað annars vegar til að meta framlag gena til áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma og hins vegar til að mynda viðmiðunarhóp í ýmsum erfðarannsóknum. Þátttakendum er frjálst að hafna þátttöku í þessum hluta rannsóknarinnar. |