|
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bylgja Valtýsdóttir Upplýsingafulltrúi sími: 535-1854 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
| Verkefnastyrkur úr Rannsóknasjóði |
|
Í úthlutun úr Rannsóknasjóði Rannís í janúar hlaut Hróbjartur Darri Karlsson læknir hjá Hjartavernd tæplega fimm milljónir í verkefnastyrk fyrir rannsókn sína "Má nýta sambandið milli persónuleika D og kransæða- og hjartasjúkdóma til aðgreiningar í forspármódelum fyrir kransæða- og hjartasjúkdóma".
Í þessari rannsókn verða skoðuð tengsl persónuleika D við hjartasjúkdóma og áhættuþætti þeirra. Rannsóknin er gerð með það fyrir augum að meta hvort líta megi á persónuleika D sem áhættuþátt í kransæðasjúkdómum og nýta í forvarnar- og meðferðarstarfi gegn hjartasjúkdómum. |