|
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bylgja Valtýsdóttir Upplýsingafulltrúi sími: 535-1854 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
| Sykur og gosdrykkjaneysla ungs fólks vandamál |
|
Ungt fólk á Íslandi neytir sykurs og gosdrykkja í óhófi, en fiskneysla í hóp þess fer minnkandi eins og fram kemur í nýrri skýrslu Manneldisráðs, sem gefin er út af Lýðheilsustöð.
Ungt fólk á Íslandi neytir sykurs og gosdrykkja í óhófi, en fiskneysla í hópi þess fer minnkandi að því er fram kemur í nýrri skýrslu Manneldisráðs, sem gefin er út af Lýðheilsustöð og geymir helstu niðurstöður nýrrar könnunar á mataræði Íslendinga. Á blaðamannafundi, þar sem skýrslan var kynnt, kom fram að strákar á aldrinum 15-19 ára drekka að meðaltali tæpan lítra af gosdrykkjum á dag. Sykurneysla þeirra er jafnframt meiri en góðu hófi gegnir, eða um 143 grömm af viðbættum sykri á dag. Stúlkur á sama aldri drekka minna af gosi, en þess í stað drekka þær meira af vatni og sódavatni. Um 20% stúlkna í rannsókninni sögðust aldrei drekka sykrað gos. Um 55% af öllum viðbættum sykri í fæði strákanna kemur úr gosi og sætum drykkjum en stúlkur fá um þriðjung sykursins úr gosi.
Pizzan leysir fiskinn af hólmi sem þjóðarréttur ungs fólks
Skýrslan, Hvað borða Íslendingar? er í heild sinni á heimasíðu Manneldisráðs. |