Forsíða arrow Fréttir arrow Rúmlega 60 milljóna kr styrkur - Fréttatilkynning
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bylgja Valtýsdóttir
Upplýsingafulltrúi
sími: 535-1854
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Rúmlega 60 milljóna kr styrkur - Fréttatilkynning
Hjartavernd fær rúmlega 60 milljóna króna styrk til rannsókna á sambandi þögulla hjartadrepa, sykursýki og æðasjúkdóma í augnbotnum.

Nýlegar rannsóknir Hjartaverndar í samvinnu við Öldrunarstofnun Bandaríska Heilbrigðisráðuneytisins (National Institute on Aging) og Hjarta, Lungna og Blóðsjúkdómarannsóknastofnunar Bandaríska Heilbrigðisráðuneytisins (National Heart, Lung and Blood Institute) hafa leitt í ljós að þögul hjartadrep eru umtalsvert algengari í öldruðum en áður hefur verið talið og fjöldi einstaklinga hefur fengið kransæðastíflu án þess að hafa nokkra hugmynd um það sjálfir. Ljóst er að þetta getur haft afgerandi áhrif á þróun hjartabilunar sem er það heilsufarsvandamál í öldruðum sem vex hvað hraðast og dregur á lúmskan máta umtalsverðan fjölda einstaklinga til dauða á hverju ári auk þess
að valda miklum óþarfa þjáningum og að vera einn af kostnaðarsamari þáttum í heilbrigðisþjónustunni.
Sykursýki er einnig eitt af stærri og vaxandi vandamálum í samfélaginu sem hefur í för með sér umtalsverða skerðingu á lífsgæðum og tengingu við sjúkdóma eins og hjarta - og æðasjúkdóma sem og blindu.

Hjartavernd hefur nú gert nýjan samning við Hjarta, Lungna og Blóðsjúkdómarannsóknastofnunar Bandaríska Heilbrigðisráðuneytisins, Augnrannsóknastofnun Bandaríska Heilbrigðisráðuneytisins, (National Eye Institute) og Öldrunarstofnun Bandaríska Heilbrigðisráðuneytisins um rannsóknir á þátttakendum í Öldrunarrannsókninni þar sem beitt verður segulómun til rannsókna á hjartavöðva og sérstökum augnbotnamyndatökum til rannsókna á æðakerfi í augnbotnum. Með nýlegri tækni í segulómun má greina hjartadrep með meiri nákvæmni en áður. Greiningaröryggi segulómunar á drepum í hjartavöðva er það hæsta sem þekkist í læknisfræði. Hjartavernd stendur hvað fremst í notkun myndgreiningar í faraldsfræði og skipar sé þar í sess með fremstu rannsóknastofnunum í heimi í rannsóknum af þessu tagi. Samningurinn hljóðar uppá rúmlega 60 milljónir íslenskra krónna. Í ljósi þeirra uppgötvana sem þegar hafa verið gerðar með segulómrannsóknum í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar þá leikur ekki nokkur vafi á að niðurstöðurnar munu geta leitt til aukins heilbrigðis á efri árum og þar með aukinna lífsgæða með skilningi á sjúkdómum og hvernig má bregðast við þeim í tæka tíð með forvarnarstarfi.

Allar frekari upplýsingar gefur Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Rannsóknastöðvar Hjartaverndar 5351806 eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það