|
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bylgja Valtýsdóttir Upplýsingafulltrúi sími: 535-1854 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
| Rannsóknir Hjartaverndar kynntar í Háskóla Íslands |
|
Þriðjudaginn þann 6. janúar sl. lauk fjórtándu ráðstefnunni um
rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla Íslands. Ráðstefnan
stóð yfir í 2 daga og var haldin á vegum læknadeildar,
tannlæknadeildar, lyfjafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar,
námsbrauta í sjúkraþjálfun, og geisla- og lífeindafræði, matvæla- og
næringarfræðideildar og sálfræðideildar, Miðstöðvar í
lýðheilsuvísindum, og Tilraunastöðvar Háskóla Íslands. Að venju var ráðstefnan vel sótt og fjölmargir vísindamenn kynntu niðurstöður rannsókna sinna hvort sem var með erindum eða á veggspjöldum. Skemmst er frá því að segja að ráðstefnan tókst einstaklega vel og var þáttur Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar umtalsverður, hvort sem um var að ræða kynningar á eigin rannsóknum eða í samstarfi við erlenda og íslenska vísindamenn og rannsóknarstofnanir. Haldin voru 15 erindi eða kynningar á veggspjöldum á rannsóknum sem byggja á gögnum Hjartaverndar á sviði læknisfræði, geislafræði, sálfræði, öldrunarfræði og lífeðlisfræði svo dæmi séu tekin. Þetta ber hinu öfluga vísindastarfi Hjartaverndar góðan vitnisburð, vísindastarfi sem er á heimsmælikvarða á sviði faralds-, erfða- og geislafræði. Þetta öfluga rannsóknarstarf endurspeglar hið frábæra starfsfólki sem stofnunin hefur á að skipa en ekki síður þann velvilja sem Hjartavernd nýtur meðal íslensku þjóðarinna sem kemur fram í því að Íslendingar eru einstaklega viljugir að taka þátt í rannsóknum okkar. Starfsfólk Hjartaverndar mun á nýju ári halda ötult áfram sínu öfluga vísindastarfi, greinaskrifum ásamt kynningum og fyrirlestrum á erlendum jafnt sem innlendum vettvangi. |