|
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bylgja Valtýsdóttir Upplýsingafulltrúi sími: 535-1854 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
| Konur og hjartasjúkdómar |
|
Alþjóðlegi hjartadagurinn í ár, sunnudagurinn 28. september, verður tileinkaður hjarta- og æðasjúkdómum meðal kvenna. Með því vilja Alþjóðlegu hjartasamtökin vekja athygli á að þessir sjúkdómar eru alls ekki eingöngu vandamál karla heldur einnig algengt og alvarlegt vandamál meðal kvenna. Hér á Íslandi hefur tíðni kransæðasjúkdóma vissulega lækkað verulega á síðasta áratug.
Alþjóðlegi hjartadagurinn í ár, sunnudagurinn 28. september, verður tileinkaður hjarta- og æðasjúkdómum meðal kvenna. Með því vilja Alþjóðlegu hjartasamtökin vekja athygli á að þessir sjúkdómar eru alls ekki eingöngu vandamál karla heldur einnig algengt og alvarlegt vandamál meðal kvenna. Hér á Íslandi hefur tíðni kransæðasjúkdóma vissulega lækkað verulega á síðasta áratug. Sú lækkun hefur þó orðið minni meðal kvenna en karla og hluti af þeirri skýringu felst væntanlega í því að íslenskir karlar hafa dregið verulega meira úr reykingum en íslenskar konur. Nú er svo komið að fleiri miðaldra konur en karlar reykja á Íslandi. Því er fyrirsjáanlegt að reykingatengdir sjúkdómar munu verða algengari meðal íslenskra kvenna en karla á næstu árum ef svo fer fram sem horfir. Flestir þekkja ógnvænlegar afleiðingar reykinga svo sem krabbamein og lungnasjúkdómar. Það vill hins vegar oft gleymast að meira en helmingur af dauðsföllum sem tengjast reykingum er vegna hjarta- og æðasjúkdóma, sérstaklega kransæðasjúkdóma, þar sem reykingar eru einn sterkasti áhættuþáttur fyrir þessum sjúkdómum. Konur sem reykja missa verndandi áhrif kvenkynsins gegn þessum sjúkdómum og eru því í sömu áhættu og karlar að fá þennan sjúkdóm. Konur sem reykja einn pakka eða meir af vindlingum á dag hafa þannig margfalda áhættu á að fá kransæðasjúkdóm miðað við konur sem reykja ekki. Hóprannsókn Hjartaverndar hefur einnig sýnt að stórreykingar stytta ævilíkur bæði karla og kvenna um mörg ár. Jafnframt sýna þessar rannsóknir að það er aldrei of seint að hætta, slíkt skilar sér í bættri heilsu á öllum aldri. Vissulega er þó vert að undirstrika að mikilvægast er fyrir ungt fólk að byrja aldrei á reykingum. Rannsóknir Hjartaverndar hafa einnig sýnt að íslenskar konur virðast eiga mun erfiðara með að hætta reykingum en karlar, nokkuð sem vert er að benda á í baráttunni gegn reykingum ungra stúlkna.
Gunnar Sigurðsson læknir Áður birt í Morgunblaðinu 27.september 2003 |