|
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bylgja Valtýsdóttir Upplýsingafulltrúi sími: 535-1854 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
| Hjartavernd fær afhentar 1.200.000 kr eftir söfnunarátak |
|
Hjartavernd fær afhentar 1.200.000 kr eftir söfnunarátak fjölskyldu Rúnars Júl, Hamborgarafabrikkunnar og N1.
Alls söfnuðust 1.200.000 krónur af sölu hamborgaranna og disksins og var söfnunarféð afhent við hátíðlega stund á Hamborgarafabrikkunni að viðstöddum fulltrúum Hjartaverndar, Vilmundi Guðnasyni prófessor og forstöðulækni Hjartaverndar og Bylgju Valtýsdóttur upplýsingafulltrúa, fjölskyldu Rúnars heitins og eigendum Hamborgarafabrikkunnar þeim Sigmari Vilhjálmssyni og Jóhannesi Ásbjörnssyni. Við þetta tækifæri færði Vilmundur fjölskyldu Rúnars sérstakar þakkir fyrir hið mjög svo mikilvæga og góða framtak þeirra, Hamborgarafabrikkunnar og N1. Vísindamenn Hjartaverndar vinna í dag að því að finna leið til að greina þá sem eru í áhættu á að fá hjartasjúkdóm mörgum árum áður en einstaklingurinn byrjar að líða fyrir hann enda er óásættanlegt að fólk í blóma lífsins eins og Rúnar Júlíusson falli frá vegna hjartasjúkdóms. Framtak og framlag sem þetta skiptir því miklu máli og nýtist vel til áframhaldandi rannsókna og forvarna hjarta- og æðasjúkdóma. Stuðningur sem þessi flýtir fyrir því að þjóðin eignist aðferð sem virkar til að minnka þann skaðvald sem hjarta- og æðasjúkdómar valda og um leið mun þjóðarhagur aukast í orðsins fyllstu merkingu. Hjartavernd tekur því við þessum styrk með þakklæti og auðmýkt og þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn, fjölskyldu Rúnars, Hamborgarfabrikkunni, N1 og síðast en ekki síst þeim fjölmörgu sem styrktu átakið með því að kaupa diskinn og Herra Rokk hamborgarann. Hafið hjartans þökk fyrir. |