|
Hjartavernd endurnýjar tækjakost |
|
Þann 16. júní 2007 fór Kvennahlaup ÍSÍ í 18. sinn í samstarfi við
Hjartavernd. Yfirskrift hlaupsins var Hreyfing er hjartans mál þar sem
markmiðið var að vekja athygli á konum og kransæðasjúkdómum, einkennum
og áhættum.
Í tilefni af því að Kvennahlaupið var tileinkað hjartavernd kvenna
runnu 50 krónur af andvirði hvers selds Kellogg’s pakka til
Hjartaverndar á tímabilinu 2.-16. júní. Þegar salan var gerð upp komu í
hlut Hjartaverndar 700 þúsund krónur en alls seldust 14 þúsund pakkar á
tímabilinu.
Hjartavernd notaði féð til að endurnýja tækjakost á rannsóknarstofu
sinni. Keypt var nýtt PCR tæki sem kemur að góðum notum við
erfðafræðirannsóknir Hjartaverndar. Í dag þekkjum við helstu
áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma en þó er nokkuð langt frá því að
fullum skilningi á sjúkdómsferlinu séð náð og eru vonir bundnar við að
erfðafræðirannsóknir varpi nýju ljósi þar á.
Með hinu nýja tæki er hægt að magna upp ákveðna búta af erfðaefninu
(DNA). Ákveðinn hluti DNA sameindarinnar er fjölfaldaður í efnahvarfi
sem er knúið áfram að PCR vélinni og þannig er kleift að greina arfgerð
á einu ákveðnu svæði erfðamengis hvers einstaklings. Með þessari aðferð
er reynt að finna erfðaþætti sem tengjast hjarta- og æðasjúkdómum,
sykursýki, æðakölkun og beinþynningu svo dæmi séu tekin. Tækið er af
gerðinni Verity frá Applied Biosystems og var keypt af Gróco ehf.
Á dögunum kynnti Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Hjartaverndar hinn
nýja tækjakost en viðstaddir auk Vilmundar voru Brynja Georgsdóttir
vörumerkjastjóri Nóa Síríus fyrir hönd Kellogg’s á Íslandi, Jóna Hildur
Bjarnadóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Kristín
Bjarnadóttir lífeindafræðingur rannsóknarstofunnar og Sigríður Harpa
Hafsteinsdóttir, sameindalíffræðingur.
Kvennahlaup ÍSÍ fer næst fram þann 7. júní í samstarfi við
Lýðsheilsustöð og er þema ársins “Heilbrigt hugarfar, hraustar konur
|