|
GoRed fyrir konur á Íslandi – forvarnir hjarta- og æðasjúkdóma
GoRed á Íslandi fékk í vikunni afhent styrktarfé sem safnaðist í
tengslum við GoRed daginn á Íslandi sem haldinn var á konudaginn 22.
febrúar s.l. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fulltrúar Skeljungs, Blómavals,
Lyfja og heilsu og Elizabeth Arden afhentu framlag sitt fulltrúa
stjórnar GoRed á Íslandi og var myndin tekin við það tækifæri.
GoRed átakið var styrkt af Skeljungi, Blómavali og Elizabeth Arden
snyrtivörufyrirtækinu sem jafnframt er styrktaraðili átaksins á
heimsvísu. Á myndinni má sjá Guðrúnu M. Örnólfsdóttur markaðsstjóra hjá
Skeljungi, Hrönn Ingólfsdóttur framkvæmdastjóra markaðssviðs Skeljungs,
Bylgju Valtýsdóttur upplýsingafulltrúa Hjartaverndar fyrir hönd
stjórnar GoRed, Elísabetu Jónsdóttur markaðs- og skristofustjóra Forval
sem er umboðsaðili Elizabeth Arden, Sigríði Þóru Magnúsdóttur fulltrúa
Lyfja og heilsu og Kristin Einarsson framkvæmdastjóra verslunarsviðs
Blómavals. Á myndina vantar fulltrúa Hagkaups.
Á konudaginn rann allur ágóði af blómasölu Skeljungs til GoRed átaksins
og Blómaval seldi sérstaka blómvendi í búðum einnig til styrktar
átakinu. Alls safnaði Skeljungur 175.755 krónum og Blómaval 150.000
þúsund krónum. Hagkaup og Lyf og heilsa í samstarfi við Elizabeth Arden
létu 500 krónur renna til GoRed af hverri seldri tösku með 8hr línunni
frá Eliszabeth Arden. Taskan er enn til sölu og verður það áfram þar
til í byrjun maí.
Á næsta ári verður GoRed dagurinn aftur haldinn á konudaginn og verður
dagurinn tileinkaður hjarta- og æðasjúkdómum meðal kvenna. Stefnt er að
því að koma á laggirnar sérstökum rannsóknarsjóði GoRed á Íslandi.
Hlutverk sjóðsins verður að efla rannsóknir á hjarta- og æðasjúkdómum
og fræðslu og forvörnum meðal kvenna um hjarta- og æðasjúkdóma. Formleg
stofnun sjóðsins verður á GoRed daginn 2010, konudaginn, og er það vel
við hæfi.
GoRed mun einnig kappkosta að sækja landsbyggðina heim með opnum
fræðslufundum á næsta ári. Fulltrúar stjórnar GoRed hafa nú þegar veitt
félaga- og líknarsamtök fræðslu til að efla vitundarvakningu kvenna á
hjarta- og æðasjúkdómum.
Eins ber að geta að í kjölfar GoRed dagsins verður stofnuð sérstök
kvennadeild innan Hjartaheilla, landssamtaka hjartasjúklinga.
Stofnfundur verður 5. maí n.k. í húsnæði SÍBS og hvetur stjórn GoRed á
Íslandi allar konur sem kynnst hafa sjúkdómnum að eigin raun eða sem
aðstandendur að gerast stofnaðilar.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt
og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um
áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga má úr
líkum á sjúkdómunum.
GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation. Verndari
átaksins hér á landi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum
heilbrigðisráðherra.
|