|
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Bylgja Valtýsdóttir Upplýsingafulltrúi sími: 535-1854 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það |
| Herra Rokk á Hamborgarafabrikkuni. Góðgerðarsöfnun til styrktar starfsemi Hjartaverndar í október |
|
Á blaðamannafundi verður á morgun miðvikudaginn 22. september kynnt góðgerðarsöfnun til styrktar Hjartavernd á Hamborgarafabrikkunni Höfðatorgi. Stytta af Rúnari Júlíussyni vígð á Hamborgarafabrikkunni
Hamborgarafabrikkan spilar eingöngu íslenska tónlist og tengist þar með íslensku tónlistarlífi sterkum böndum. Nýverið festi Hamborgarafabrikkan kaup á styttu af Rúnari Júlíussyni, Hr. Rokk. Styttan er nákvæm eftirmynd Rúnars í fullri stærð, gerð af listamanninum Rúnari Hart eftir gifsmótum sem tekin voru af Rúnari nokkrum dögum áður en hann féll frá. Styttan mun standa á Hamborgarafabrikkunni til minningar um þennan merka tónlistarmann og ljúfmenni. “Það er okkur sönn ánægja að koma að þessari söfnun þar sem faðir okkar fór í vel heppnaða hjartalokuaðgerð árið 1996. Í kjölfarið fylgdu 12 viðburðarík ár þar sem hann gaf út plötu á hverju ári, fékk ótal viðurkenningar, gaf út ævisögu sína, hélt stóra tónleika í Laugardalshöll, gaf út safndisk með yfirliti yfir ferilinn, gifti sig og sló síðasta hljóminn með félögum sínum í Cavern klúbbnum í Liverpool. Án þessa merka rannsóknarstarfs sem unnið hefur verið hjá Hjartavernd síðustu áratugina er óvíst að við hefðum fengið að njóta þessara ára með honum.”, segja Baldur og Júlíus, synir Rúnars heitins.
Góðgerðarsöfnun til styrktar starfsemi Hjartaverndar
“Stuðningur þessi er ómetanlegur. Hann styrkir okkur enn frekar í baráttunni gegn hjartasjúkdómum og færir okkur nær takmarkinu, að finna þá sem eru í áhættu á að fá sjúkdóminn mörgum árum áður en einstaklingar byrja að líða fyrir hann. Þannig fáum við möguleika til varnar”, segir Vilmundur Guðnason, prófessor og forstöðulæknir Hjartaverndar.
Hamborgara gefið nýtt nafn - Herra Rokk - til heiðurs minningu Rúnars “Það er okkur mikill heiður að fá að varðveita þessa styttu og gleðiefni að fjölskylda Rúnars hafi tekið vel í þá hugmynd. Hjartavernd stóð Rúnari og fjölskyldu nærri og því finnst okkur frábært að geta lagt þeim lið með þessum hætti“, segir Jóhannes Ásbjörnsson, annar eigenda Hamborgarafabrikkunnar.
Nánari upplýsingar veita: |